Bræður okkar búlgarar

Þetta er næstum eins og á Íslandi, nema að mafían okkar tapaði landi og þjóð í fjárhættuspili.
mbl.is Þar sem mafían á landið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heiðnar rætur

Jólin eiga fyrir það fyrsta heiðnar rætur og fyrir mér hefur þetta aldrei verið nein kristin hátíð. Þetta er hátíð fjölskyldunnar og ljóssins. Þetta var hátíð löngu áður en kirkjan eignaði sér hana.

hér er hægt að lesa meira:

http://en.wikipedia.org/wiki/Yule


mbl.is Vill banna jólasveina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Varlega með yfirlýsingar

Fólk sem hefur verið að tjá sig hérna á blogginu hefur sumt gengið svo langt að kalla Steingrím vondan mann, en ég verð nú að segja að þrátt fyrir að ég sé nú ekki sammála Steingrími í pólitík, þá finnst mér hálfgerð skyndilausnar lykt af þessu öllu saman. Að semja um skuldir er svo sem fínt en að semja um skuldir bara til að þóknast einhverjum bullum svo að maður geti tekið annað lán til að borga lán.

Áður en þessi fjármálaóreiða skaut upp kollinum voru fjölmargir sérfræðingar búnir að vara okkur við og sjá hvernig fór. Hversu margir sérfræðingar eru búnir að mæla með því að íslenska þjóðin taka risalán til að borga fyrir mistök og græðgi nokkurra óreiðumanna og þar af leiðandi skuldbinda þjóðina til að beygja sig undir skilmála hagsmunahópa, þ.e. annarra þjóða t.d. breta sem vilja gjarnan komast á fiskimiðin okkar aftur.

Bendi fólki á að lesa grein um bandaríska hagfræðinginn Robert Z. Aliber, sem birt var á mbl.is 13. nóv.

http://www.mbl.is/mm/vidskipti/frettir/2008/11/13/gaetum_haeglega_sleppt_imf_lani/

 


mbl.is Lengi getur vont versnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um bloggið

Arnþór Guðjón Benediktsson

Höfundur

Arnþór Guðjón Benediktsson
Arnþór Guðjón Benediktsson
Tónlistarmaður, faðir og vasaheimspekingur
Nóv. 2008
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.10.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband