Vorum

Væri ekki réttara að segja að við vorum nú einu sinni víkingar? Það væri gaman að vita hvað okkar forfeðrum fyndist um hvernig íslensku samfélagið er núna. Forfeður okkar komu til Íslands til að komast undan geræði gráðugra skattakónga og svo var barist fyrir frelsi þjóðarinnar fram á miðja 20. Öldina. En síðan þá og nú hefur eitthvað farið úrskeiðis. Við erum hætt að berjast fyrir frelsi okkar og í staðinn borgum við, í formi yfirdrátta og fáránlegra lánatilboða hjá bankastofnunum sem annað hvort hafa enga framtíðarsýn og ekki hæfni til að verða sér út um slíkt eða eru bara fullar af fólki sem er alveg sama, gráðugum, sjálfumglöðum og samviskulausum viðskiptamönnum fyrir að nauðga þjóðarsálinni og hneppa þjóðina sjálfa í álög sem valda að viðkomandi verður ekki annað en afborgandi af stórkarlaleikjum hinna fáu útvöldu.

Allt í lagi, ég veit að flestir taka sér lán algjörlega af sjálfsdáðum og engin er að snúa uppá handlegginn á viðkomandi, en þetta væri aldrei búið að ganga svona langt ef fólk með örðu af ábyrgðarkennd myndi stýra þessum fjármála- og lánaheimi. Og svo eru þetta náttúrulega líka gott sölufólk. Ég þekki þetta af eigin raun og hef farið illa í fjármálum og ég tek ábyrgðina af því og kannski hljómar þessi pistill eins og eitthvað biturt væl í annars flokks tapara sem vill koma sökinni á einhvern annan, og auðvitað vill ég það, hver vill ekki geta kennt einhverjum öðrum um eigin ólán?

Skrítið að óraunverulegt vandamál eins og fjármál getið haft svona áhrif á fólk. Við bjuggum til þetta kerfi afhverju er ekki hægt, eins og ég las í einhverjum pistli hérna, núllstillt kerfið, breytt því svo að svipuð staða komi ekki upp aftur og haldið áfram. Byrjað aftur.


mbl.is „Við erum nú einu sinni víkingar"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Edda Sigurjónsdóttir

Við erum víkingar, ég er sjálf ljósmyndari og Herbalifedreifingaraðili til 10 ára, margir vinir mínir í kvikmyndagerð og tónlist, og ekki heyrist mér að nokkur ætli að láta deigan síga.

Ef að maður er listamaður þá þarf maður stundum að taka til hendinni við eitthvað annað og ef manni vantar nýjar græjur þá þarf maður að vinna 7 daga vikunnar í einhvern X tíma.

Svo finnst mér með einsdæmum hallærislegt að vera að uppnefna bankafólk, það spilaði eftir þeim reglum sem giltu um allan heim. Íslenskir bankar eru ekki þeir einu sem eiga í vandræðum.

Edda Sigurjónsdóttir, 5.10.2008 kl. 12:21

2 Smámynd: Nonni

Ég er Víkingur og mun ekki bugast, gaman að þú sért að blogga því þú ert frábær penni.

Nonni, 8.10.2008 kl. 21:17

3 Smámynd: Arnþór Guðjón Benediktsson

Enda væri fokið í flest skjól ef þú færir að bugast

Arnþór Guðjón Benediktsson, 10.10.2008 kl. 19:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Arnþór Guðjón Benediktsson

Höfundur

Arnþór Guðjón Benediktsson
Arnþór Guðjón Benediktsson
Tónlistarmaður, faðir og vasaheimspekingur
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 205

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband